sidasta bloggid?
hvad er eg buin ad bralla sidan sudureyjarferd ... fullt af hlutum eiginlega... for i geography trip til kaikoura thar sem vid vorum ad gera verkefni .. eg var i hop med margaret og makaelu, og stelpu sem heitir jess, og vid attum ad vera ad spurja folk spurninga en vid nenntum thvi ekki svo vid bjuggum bara til svorin og satum a kaffihusi a medan, frekar gott. eg endadi svo a ad gera ekki verkefnid thvi eg thurfti thess ekki sem var gooood. en ja, thetta var bara mjog god ferd, svo for eg til wellington 3ja - 7nda juni thar sem eg hitti fullt af odrum skiptinemavinum minum sem eg hefdi aldrei hitt annars svo ja , thad var gedveikt skemmtileg ferd og ja, gedveikt gaman bara. skolinn er enn bara mjog godur, a eftir ad sakna hans, an djoks, helt eg myndi ekki en ja. tharf ad flytja raedu eftir um thad bil viku fyrir framan allan skolann thvi tha er sidasta assemblyid mitt .. thad verdur spennandi
let svo alla halda uppa 17. juni thar, teiknadi fanann a hendina a mer og odrum lika og thannig, og allir gengu um segjandi "happy iceland day" vid hverja adra, sem var fyndid. geri ekkert i timum nuna eiginlega, t.d. i geography tek eg bara bok og les eda eh, a bara 10 skoladaga eftir svo mer er eiginlega skitsama, veit ad i sidustu vikunni mun eg liklegast ekki fara i alla timana og bara sitja i common room, en vid sjaum til
hlakka til ad sja hvort thid takid eftir thvi ad eg hafi breyst eda ekki .. mer finnst thad, og tha er eg ekki ad tala um afs = another fat student thvi thid munid potto taka eftir thvi, en ja, allavega!
finnst ekkert einsog eg se ad fara ad fara heim, aetti orugglega ad vera buin ad senda eh dot en ja, er ekki einusinni byrjud ad pakka. ups
minna en 20 dagar, mig langar ekki ad vita akkurat, alltof skritid. var ad koma heim af end of stay camp sem var gaman, allir krakkarnir fra sudureyjunni sem eru ad fara heim og sumir sem komu i byrjun arsins og verda enntha her. komum a fostudag, toludum bara og svoleidis, forum i eh leiki og forum svo ad sofa. svaf ekki mikid reyndar afthvi penille var veik og ja, vid vorum ad sja til thess ad thad vaeri i lagi med hana. svo var orientation thar sem vid vorum bara ad tala um eh, ad fara, segja bae og thannig og ja, svo bara free time og eh, uhhhh svo aefa leikrit sem vid syndum, og ja, svo missti eg roddina um kvoldid afthvi vid hofdum svona .. fotbolta world cup mot og vorum skipt eftir londum, 3 i lidi, thannig ad ef thad voru 3 fra sama landi voru thau saman i lidi en ja, thar sem eg var ein fra islandi var eg i blondudu lidi, iceland\denmark\russia, en ja thetta var semsagt a bordi, bordtennisbolti og svo fengum vid ror og attum ad reyna ad blasa boltanum i hitt markid .. eg vard sma competitive og oskradi adeins svo nuna get eg varla talad, hehehe. en ja thetta var bara mjog skemmtilegt, forum ad sofa half 5 laugardagskvold svo eg er frekar threytt nuna
ekki enn ad fatta ad eg se ad fara .. thad ehvegin passar ekki. helt ar myndi verda lengur ad lida, en finnst thetta samt hafa verid svo lengi eh, otrulega skrytid. hlakka ekkert til ad fara en hlakka gedveikt til ad koma heim. passar ekki! verdur svo erfitt ad segja bae vid stelpurnar i skolanum og skiptinemavini mina
en nuna nenni eg thessu ekki lengur ,se ykkur bradum!
btw ef thid viljir myndir ur geography trip tha eru thaer her: http://www.facebook.com/album.php?aid=174635&id=719012682&l=9691f61ddb
thurfid ekki facebook til ad sja. get ekki sett fleiri thvi ja, tolvan virkar ekki og eg tok ekki margar myndir i wellington og a end of stay, ekki gott, ekki gott.
SOUTH ISLAND TOUR
Tími kominn fyrir blogg ... ég man reyndar voðalega lítið um það hvað ég gerði frá síðasta bloggi þangað til Suðureyjarferðinni svo ... já. Nicole‘s 18th var einhverja helgi þarna ... held það hafi verið 19. mars ... gisti hjá Margaret eftir það. Svo næsta dag fór ég með Penille og Pablo í keilu og svo á fyrsta rugby-leikinn minn. Það var gamaaaaan.



Eldaði lasagne fyrir Þóru, oh yea
Okei, LETS GET THE PARTY STARTED! Byrjaði á því að ég og Þóra fórum á flugvöllinn og sóttum Unni. Svo bara chilla eh ooooog svo fórum við niðrí bæ á Christchurch Youth Hostel þar sem við hittum hópinn. Fengum kvöldmat, töluðum og svoleiðis, hitti fólk sem ég hef ekki hitt í laaangan tíma sem var skemmtilegt! Alltaf í svona ferð um er "buddy system" semsagt þannig að þegar við förum inní rútuna þá kallar tour managerinn "BUDDY CHECK" og við eigum að finna okkar buddy, þá er auðvelt að finna ef það vantar einhvern án þess að þurfa að telja alla. Minn buddy var Matthias, strákur frá Þýskalandi sem talaði næstum aldrei og sá sem átti að "finna mig" var strákur frá Frakklandi. Svo erum við líka alltaf með mascot, þetta árið var það kiwibird bangsi sem við skírðum Bruce. Tour managerinn okkar var Hayley, hún sá líka um North Island tour sem ég fór í í September, hún er æði! Svo voru tveir ‘chaperones', Thera og Tony ... þau voru alltílægi, pirruðu mig smá stundum en já, þau voru frekar næs. Það voru 44 skiptinemar í ferðinni, frá 18 löndum. Nenni ekki að telja alla upp en skal hafa landið sem fólkið kemur frá í svigum ef ég minnist á þau.
Day 2 - Christchurch - Dunedin
Vöknuðum og keyrðum til Dunedin. Stoppuðum hjá Moeraki Boulders sem eru svona hringlaga steinar ... veit ekki alveg afhverju ... held það hafi eitthvað að gera með það að þeir rúlluðu niður úr hlíðinni eða eitthvað. Ég gæti samt verið að bulla, er ekki viss. Keyrðum áfram þangað til við komum til Dunedin, stoppuðum þar og sumir fóru Í Cadbury chocolate factory en ég, Joy og Penille löbbuðum bara um. Það kvöld vorum við bara að tala og eh þannig, bara chill.

Moeraki boulders - ég og Penille

moeraki boulders - joy og ég

moeraki boulders

ég og joy

chocolate factory
Ég var með alveg aðeins of mikið dót þannig ég þurfti að fá einn af frönsku strákunum til að setjast ofaná töskuna mína ... Þennan dag löbbuðum við upp bröttustu götu í heimi og svo keyrðum við til Wanaka, á leiðinni lærðum við "The Haka" sem er svona ... sem Maórí fólkið gerði áður en það fór að berjast og eitthvað (held ég) ... núna nota rugby liðin þetta áður en þau spila leiki (þóra, ég veit þú munt lesa þetta, leiðréttu mig ef ég er að bulla). Allavega, ætla að setja inn textann við "The Haka":
ka ora, ka ora
ka mate, ka mate
ka ora, ka ora
tenei te tangata
pu huruhuru
nana nei tiki mai
whaka whiti te ra
a hupane, a hupane
a hupane kopane whiti tera
HI
tatou tatou e
tutira mai nga iwi, OE
tatou tatou e
whai-a te marama-tanga
me te aroha - e nga iwi!
Ki-a k' tapa-tahi
ki-a ko-tahi ra
tatou tatou e
ta- tou, ta - tou E
Hi aue hei!

brattasta gata í heimi

Kristian (DK) og Adrien (Belgía)

komin upp, Joy, ég, Adrien og Penille

allur hópurinn

puzzling world

eg er algjör risi! (svona tækni var var notuð í lord of the rings fyrir hobbitana)

elja og ég í völundarhúsinu

"klósett" í puzzling world

Wanaka

penille, joy og ég
Day 4 - Wanaka - Milford Sounds

ég elska nýja sjáland! :o

á leiðinni til milford sounds

þóra, elja og ég

mirror lakes

adrien og ég

Þóra, ég og Bruce

ég og joy

milfor sounds!

sáum höfrunga :)

kayaking

sebastian, ég, moritz og andreas

báturinn sem við gistum á

listaverk mitt og joy
Day 5 - Milford Sounds - Queenstown
Ég, Penille (DK), Þóra, Elja (Belgía) og Joy (USA) ákváðum að vakna kl 6 og horfa á þegar sólin kæmi upp. Vöknuðum, löbbuðum upp og það var kolsvartamyrkur ... föttuðum svo að við myndum ekki sjá sólina koma upp útaf fjöllunum, en vorum vaknaðar hvortsemer svo að já! Sigldum útá sjó, það var frekar bumpy, tókum myndir, það var frjóskalt! Ótrúlega fallegt samt. Gerðum "the Haka" á bátnum, vorkenndi strákunum smá því þeir þurftu að fara úr að ofan, og það var svo ótrúlega kalt haha! Okei .... drakk endalaust af heitu kakói því ég var að frjósa og allir komu með "oh, you're from iceland, why are you cold?!" og mig langaði til að lemja þau ... allavega, komum í land og keyrðum til QUEENSTOWN! Stoppuðum á Kawaru bridge þar sem sumir gerðu bungy (kiwi-bangsinn hoppaði líka með Moritz (Þýskaland)!) og svo fengum við svona kynningarferð um teygjustökkin og svoleiðis. Fórum upp í The Gondola, fengum svo 3 ferðir í The Luge (litlir "bílar" sem maður keyrir niður í) og svoleiðis. Þetta kvöld var svo free night ... fórum niðrí bæ og fengum okkur Fergburgers (bestu hamborgarar í NZ segja allir og VÁ ÞAÐ VAR SATT!) Þeir voru ótrúlega stórir og bara æðislegir! Borðuðum þá hjá vatninu, vorum bara eh að labba um og svona. Svo labbaði ég heim með Joy, Lisu og Charlotte (Þýskaland) og Anna (Latvia) og það var alveg freeeekar fyndið, vorum að labba yfir götu og einhver fullur gaur kom upp að okkur og bauð okkur í party aldarinnar, það var sko búið að færa sjónvarpið og allt! Alveg svakalegt sko! Haha :D

þóra og ég um morguninn

þóra, adrien, ég og andreas

haha, nærmynd

ég, þóra og joy

just chillin'

joy og ég í 'the gondola'

luge
Optional activity day! Vaknaði kl 6 afþví Joy, Penille og Þóra voru að fara í skydiving. Hitti svo Kathi (Austurríki), Laurence (Kanada), Ninu (DK) og Adrien (Belgíu) og við löbbuðum saman niðrí bæ og skráðum okkur inn fyrir Bungy'ið okkar! Kl 10 keyrðum við að staðnum þar sem bungy'ið var, tók svona uþb 40 mín ... og þá byrjuðum við að fríka út. Vorum vigtuð, fengum svona ... harnesses, og löbbuðum svo út og horfðum á annað fólk hoppa ... fórum svo yfir í þarna .. dæmið sem maður hoppaði af í svona litlu einhverju, æji skoðiði bara myndirnar ... Beið inní því í smá stund, horfði á alla hina hoppa því ég var síðust og svo kom loksins að mér! Fékk svona ... eitthvað dæmi á fæturna á mér, settist svo í svona stól þar sem eh dæmi var fest á fæturna á mér og svo stóð ég upp, labbaði að brúninni og gaurinn taldi niður, 3-2-1 og svo hoppa! Þetta var semsagt ... 134 m hátt, 8,5 sekúndur af free fall, og vá ÞETTA VAR SVO ÆÐISLEGT! Án djóks, eftir þetta leið mér einsog ég gæti gert bara hvað sem er! Maður þurfti að toga í svona spotta svo að þegar þeir hífðu mann upp væri maður ekki á hvolfi sem var alveg frekar erfitt, hélt ég myndi ekki ná í´hann og myndi líta út einsog einhver rækja á hvolfi eeeeen mér tókst það! Keyrðum svo til baka og ég var bara eitthvað að labba um niðrí bæ með Kathi og Gonzalo (Argentína). Keyptum buddy gifts og svoleiðiiiiiis. Þetta kvöld fengum við svo "Hangi" sem er traditional Maórí matur, eldaður í jörðinni og eh.

já, þau misskildu eh ....

freeeekar hátt!

Adrien, ég, nina, laurence, kathi - fyrir bungy

ég að fríka út fyrir bungy




after bungy!

Day 7 - Queenstown - Franz Josef
Vöknuðum og pökkuðum í töskurnar okkar. Ég stóð upp í svefnpokanum mínum og missti jafnvægið og datt ofaní ferðatöskuna mína og tókst að slasa á mér hendina (reyniði að finna meira stælish leið til að gera það sko!) og er búin að vera með svona ... umbúðir á henni í viku næstum núna, en allt í góðu samt! Allir gerðu samt grin að mér fyrir þetta ... Fórum í jetboating í Queenstown, Keyrðum svo til Franz Josef (sem er bær rétt hjá jökli), stoppuðum hjá "Punakaiki" eða pancake rocks sem voru ótrúlega flottir. Komum til Franz Josef, horfðum á mynd, átum og fórum svo í hot pools með vatni beint frá jöklinum. Var alveg frekar töff!

jet boating

ég og Karolin (Þýskaland) hjá jöklinum
Laaaaaaaaaaaaaangt ferðalag í rútunni, okkur tókst samt alltaf að hafa gaman ... fórum í leiki, horfðum á myndir, spiluðum tónlist, ójá, gleymdi að segja frá morning song! Það er alltaf svona morning song sem er lagið sem við spilum fyrst á morgnana og það verður svona .. lag ferðarinnar. Þetta árið var það "It's my life" með Bon Jovi! Annað lag sem við spiluðum líka frekar oft var "YES" með LMFAO ... það er fyndið. En já, þó við keyrðum kannski mikið þá fannst mér það bara gaman! Fórum t.d. í einn leik sem er þannig að vinstri hliðin á rútunni keppir við hægri hliðina og það er þannig að Hayley segir til dæmis "I want 5 sunglasses" og þá þurfa allir að finna sólgleraugu og rétta þau til manneskjunnar fyrir aftan sig og svo gengur það þannig þangað til þau hafa farið alla leiðina aftast í rútuna og aftur fremst og sú hlið sem er fyrst til að ná 5 sólgleraugum vinnur. Einusinni sagði hún "I want (man ekki hvað mikið) jeans" og ég var ekki sátt með hvað fólk var ekkert into the game, held það hafi bara verið ég og eh ein önnur manneskja sem fór úr gallabuxunum! Góður dagur til að vera í síðum bol, ójá. Heyrðu, komum loksins til Motueka ... þetta kvöld var svo drag night! Ég, Þóra og Elja klæddum Kristian (DK) ... létum hann fara í G-streng og vera í engum nærbuxum innanundir (sögðum honum svo að henda g-strengnum) og máluðum hann og læti. Það var fyndiiiiið. Frekar fyndið svo að horfa á alla strákana klædda einsog stelpur, sumir voru alveg frekar into it sko!

adrien og ég

pancake rocks

ég og elja

drag night, Kristian og Ronan (Frakkland)

Adrien
Day 9 - Motueka
Vöknuðum og tókum Group Photo. Fórum svo til Marahau þar sem hópnum var skipt í tvennt og helmingurinn labbaði en minn hópur kayakaði (veit að það er ekki orð) og semsagt, vorum 2 og 2 í kayak ... veit ekki hvað við vorum lengi að því en allavega ... ég og Nora (Sviss) kayökuðum með Bruce, lukkudýrið! Hmm vorum látin standa upp í kayökunum ... frekar skrýtið en já, gaman! Komum svo á ströndina, fengum okkur að éta og vorum bara þar í smá tíma, löbbuðum svo til baka sem tók svona 2 tíma. Þetta kvöld var svo movie night sem var fínt (:

Bruce, ég og Nora

á ströndinni

að spila touch rugby

ég, joy og anna

Joy, penille, þóra og ég
Síðasti heili dagurinn okkar .... : ( Allavega! Keyrðum til Kaikoura, komum þangað um hádegisleitið. Sumir áttu eftir að kaupa buddy gifts þannig að við fórum og redduðum því. Keyptum súkkulaði fyrir Tony og Theru, nammi fyrir strætóbílstjorann (chocolate fish, hann elskaði það) og svo fyrir Hayley keyptum við address book og létum alla koma og skrifa heimilsföngin í heimalandinu sínu svo hún gæti komið og heimsótt okkur þegar hún vildi, keyptum svo líka risastórt Cadbury's Dairy Milk chocolate block handa henni! Svo bjuggum við til kórónu því hún sagði alltaf "You can call me Hayley or you can call me Queen". Bjuggum til kort og læti, við erum svo yndislegar (ég, Þóra, Peni, Joy og Elja). Svo var kvöldmatur og eftir það gáfu allir buddy gjafirnar sínar. Svo eftir það gáfu Hayley og þau gjafir, ég fékk súkkulaði fyrir að vera besti töskupakkarinn með því að pakka sjálfri mér og slasa mig í leiðinni, jájá. Þóra fékk að eiga Bruce :D Þegar Peni stóð svo upp og talaði um gjafirnar okkar byrjaði hún að gráta því Hayley var að gráta og ég fór að gráta og Þóra fór að gráta og bara giant sobfest en allt í góðu. Sorglegt bara því við munum ekki hitta helling af þessu fólki aftur! Svo bara horfðum við á myndir, vöktum til svona 1 og fórum svo að lúlla, ég sofnaði á gólfinu í smá stund :')

að spila jungle speed

ég (og höndin mín), penille og gonzalo

dansa í rútunni!

allt sem við keyrðum!
Day 11 - Kaikoura - Christchurch
Heyrðu, keyrðum bara til Chch, stoppuðum á flugvellinum og sumir flugu heim ... ég, Penille og Adrien vorum svo sótt af host-mömmu Peni og hún skutlaði mér heim. (Vældum btw frekar mikið á flugvellinum en alltígóðu!) Og já, ég fór heim, var þar í smá stund, fór svo til Penille og fór með henni og Adrien að sækja Maurits (Belgía) en hann var að koma til Chch og hann og Adrien og ég gistum öll hjá Penille. Þeir fóru niðrí bæ um kvöldið og Penille og ég vorum heima og ætluðum að vaka eftir þeim svo við gætum hleypt þeim inn í húsið. Völdum 3 myndir til að horfa á og stilltum vekjaraklukku ef við myndum sofna, tókst það vel að við sofnuðum eftir 15 mínútur af myndinni og vöknuðum ekki við vekjaraklukkuna og ekki heldur þegar strákarnir voru að reyna að vekja okkur ... þeir þurftu að labba i kringum húsið og banka á gluggana!
Laugardaginn gisti ég svo hjá Margaret og bara eh ... hjálpaði henni með Classics assignment daginn eftir og fór svo heim þar sem ég svaf loksins í mínu eigin rúmi.
Á þriðjudaginn fór ég í bíó með Penille, Adrien og Sylvain og við sáum Nýsjálenska mynd sem heitir Boy, mæli með henni ef hun kemur í bíó á Íslandi (ólíklegt ...) en já, hún var æði. Í gær komu þau svo til mín og við fórum í heitapottinn og vorum bara eh að spjalla og já, í dag fór ég í skólann og svo heim! Það er kominn vetrarbúningur í skólann minn aftur ... þarf að vera í skirtunni og síða græna pilsinu, en það verður gott þegar það verður kaldara! Og já, hvað er eg að fara að bralla um helgina, heyrðu já ... veit ekki með föstudaginn en á laugardagsmorgun ætlum ég og peni að hjóla uppá flugvöll og segja bæ við Adrien því hann er að fara aftur til North Island því hann býr þar .. og svo er Girl's high formal (árshátíð, ekki minn skóli) en peni og joy eru í honum og eftir formalið er after party sem ég er að fara í. Það byrjar kl 12 og er til 4 um morgun, og svo kl 5.30 þurfum við að mæta í einhverja skrúðgöngu ... en já nóg um það, ég þarf að fara að sofa!
Á bara 2 og hálfan mánuð eftir, trúi því ekki, þetta líður alltof hratt. Langar ekki heim, þó það verði æðislegt að hitta alla! En ég elska þetta land bara svo mikið, og alla vini mína hérna og allt, en það sem er æðislegt er að ég á vini útum allan heim núna og ég ætla sko að heimsækja alla!
Og já, eldgosið var mikið í fréttunum hérna ... og enginn getur sagt Eyjafjallajökull. Veit ekki hversu oft ég hef sagt þetta bévítans nafn. Host-foreldrum mínum fannst það hljóma einsog "unflavoured yoghurt" sem er alveg smá satt!
En yea, ég ætla að sofa! Sé ykkur eftir 2 og hálfan mánuð (nema ég stingi af, sjáum til...)
Ef þú last, kommentaðu! Ef þú last ekki, kommentaðu svo ég geti rasskellt þig!
febrúar&mars
Kia Ora!
Okei, afþví að ég er búin að vera svo ömurleg að blogga og ekkert búin að blogga um janúar og febrúar þá kemur það núna! Allavega .... janúar var frekar chilled bara, man ekki alveg hvað ég brallaði í smáatriðum en já. Hmmmm einhverntíman fór ég í picnic með host fjölskyldunni minni og Carinu, gisti einhverntíman hjá Margaret og við bjuggum til köku fyrir afmælið hans quentins og höfðum spa night með honum og Pablo, svo aftur spa night með þeim einhverntíman seinna

















Hmmm kom heim frá Kaiteri, gisti í 4 nætur hjá Margaret haha ... við gerðum ýmislegt barasta! Lituðum t.d. á mér hárið, fórum í bíó, jaaá. Fór í skólann á fimmtudeginum og föstudeginum, það er goooood. Er núna í year 13 og þá megum við yfirgefa skólalóðina þegar við erum með eyður eða matarhlé, já, við máttum það ekki fyrir! Erum líka með common room þar sem við sitjum alltaf í matarhléum og þannig og það er bara year 13 sem má vera þar. Er komin með ný fög og þannig, tek núna ensku, classics, matreiðslu, landafræði, listasögu og religious studies (sem er hryllingur). En skólaárið er mikið betra núna því ég er actually að gera eitthvað í fögunum og þannig. Þriðjudaginn eftir að ég kom var house day, en þá eru engir tímar, heldur keppa „húsin" í íþróttum og maður fær house points fyrir það, var t.d. boðhlaup, langstökk, 800 metra hlaup, var frekar gaman! Svo vikunni eftir það var swimming sports en þá voru allir að synda bara og eh þannig keppnir. Maður klæðir sig semsagt upp í litum hússins síns, minn var gulur, svo ég var í gulum bol, gulum stuttbuxum, gulum jandals og með gul sólgleraugu, frekar spes haha. Þetta var allavega gaman. Hmmm fór á test screening á Valentine‘s day með margaret þannig að ég sá hana áður en hun var komin út :D Hvað meira er búið að vera að gerast ... nýtt fólk komið í AFS chapterinn okkar, Julieta frá Paraguay, Maite frá Argentínu og Joy frá USA. Joy býr nálægt mér og er búin að vera með henni frekar mikið nýlega. Líka búin að vera bara með Penille, Quentin, Pablo og þanniiiiiiiiiiiiiig. Það er svona mest sem ég er búin að vera að bralla! Bakaði bollur útaf bolludeginum þegar sumir vinir mínir komu hingað .... sá ógeðslegar pöddur og þannig ... búið að vera steikjandi heitt hér, 25-30°C í meira en viku ... fór á ströndina með joy ... for út með margaret þar sem við flautuðum á stráka og það var fyndið að sjá hvað þeim brá, strákar flauta alltaf á stelpur svo við hefndum okkar.

uuu allt er bara orðið svo venjulegt hérna, hvað er ég búin að gera meira? Joy, Anaïs og Penille gistu hjá mér síðasta föstudag, svo gistum við allar hjá Penille á laugardaginn. Elduðum maaaaaat, horfðum á myndir, bara chiiiiiill. Sunnudaginn var afs meeting þar sem ég gerði presentation um ísland. Það var bara fint. Uuu í gær, laugardag (afmæli önnubeib YEYA), fór ég á wild food festival í hokitika á west coast. Vaknaði kl 6 og fór til Jessicu og þar voru Joy, Maite, Michal og Julieta og við keyrðum með host pabba Jessicu, tók svona ... 3 og hálfan tíma. Keyrðum framhjá stað þar sem Narina var tekin upp, frekar töff. Uuu, komum þangað, fullt af fólki í búningum, avatar, alice in wonderland, allt bara haha. Það var hægt að smakka helling af ógeðslegum mat, ég smakkaði hlaup með engisprettu í, spýtti því reyndar útúr mér, og svo átum við eldaðar lirfur. Var frekar ógeðselgt líka sko hah. Julieta smakkaði worm sushi, Joy eh tré, Michal snigla ... jáaaá.


fólk gat étið lifandi lirfur beint útúr rotnandi tréinu. ég setti mörkin við steiktar lirfur

ég var ekkert voðalega spennt fyrir þessu

engisprettur í hlaupi - spýtti minni út haha

þoka yfir vatninu

worm sushi

snigill

lirfa

lirfur

narnia var tekin upp þarna

við

oooog aftur

freeekar töff búningar
Keyrðum svo til baka og bara já, sunnudagur núna, er að fara til Governors bay meðh ost fjölskyldunni í lunch :) Veit ekki meira til að segja sko, lífið hérna er orðið svo venjulegt. Finnst ótrulega skrýtið hvað það er stutt í að ég komi heim. Komin með góða vini, orðin vön öllu, hætt að villast, er bara að elska þetta. En það verður auðvitað gott að koma heim : )
Næstu helgi er Nicole‘s 18th og svo fer ég á fyrsta rugby leikinn minn með penille. Svo eru ég og penille að skoða ‘City to surf‘ sem er 12 km hlaup, ganga eða línuskautar, en ég veit ekki hvort við ætlum að gera það eða ekki. Sjáum tiiiil.
Uhhhhh veit ekki hvað meira ég get sagt, held ég hætti þessu bara í bili ;D
AAAAAAAAA EKKERT BLOGG Í LANGAN TÍMA

penille, heidi og ég í afs barbecue

ég og host-systir heidi haha

cricket

spa night

sam, anaïs, aaron og heidi

foooólk
Daginn eftir fóru svo ég og Penille niðrí bæ þar sem við hittum Heidi ogggggg fórum svo og hittum tvo aðra skiptinema, frá Finnalndi og Íslandi! Svo nú er ég búin að hitta alla íslensku AFS skiptinemana sem voru á Nýja Sjálandi 2009! Good job? jaaaá! Allavega, vorum bara með þeim eh þennan dag ... svo fór ég heimmmm og var veik! Kvef og hita um sumar, æðiiiii, en allavega, fórum í mat til nágrannanna og ég entist til 9 þar sem ég var svo slöpp að ég var að sofna. Frábært. Agglavegaaaah, daginn eftir fór ég kl 12 til Heidi og við tókum strætó á flugvöllinn þar sem við sögðum bæ við Aaron og Fennu ... asnalegt, nú er fólk að fara að fara, finnst það svo skrýtið! En eftir það fór ég bara heim þar sem mér leið ekki vellllll og já, hékk heima þann dag. Daginn eftir fór ég með Penille, Joaquín, Pablo, Oliver, Inko og eh fleiri á ströndina og eftir það bara eitthvað ... minnið farið að bregðast mér núna! Heyrðu jú, keypti Scrapbook handa Heidi og prentaði út svona 50 myndir ... oggggggg svo bjó ég til svona litla bok fyrir hana um árið hennar í nýja sjálandi og eh, svona, goodbye + jólagjöf.

aaaaaaaá ströndinni
Heyrðu, 22 desember, skulum hoppa þangað bara. Ég fór til Heidi ogggg við tókum strætó til Sumner. Löbbuðum svo frá Sumner yfir til Taylor's mistake, sem ég hef verið með myndir af áður ? Anyways, við ákváðum að taka styttri leið ... sem virkaði vel sko, þangað til við komum að girðingu. Við klifruðum yfir hana og yaddayaddayadda, þar komum við á einhvern stað þar seeem við vorum vissar um að það væri einhver brjálaður bóndi að koma og skjóta okkur eða eitthvað. Klifruðum yfir svona 10 girðingar í viðbót, enduðum uppi á hæð og þurftum að labba alla leiðina til baka, Heidi datt oní holu, var svo heitt að við vorum að labba á stuttbuxum og bikinítopp, ég datt oní holu líka, já bara basic. Allavega komum við til taylors oooog syntum í sjónum sem var æði. Tönuðum svo í smá og löbbuðum svo til baka. Var allavega 3 klst labb þennan dag sko.

sjálflýsandihvít ég á ströndinni

taylors mistake
Tókum svo strætó til baka til heidi þar sem við fórum í sturtu og þurftum svo að drífa okkur á la porchetta því ég hafði planað útaðborða fyrir fullt af fólki, svo dugleg að plana já! Sátum allavega þar til alveg ... 11 leytið, og ég gaf heidi bókina og hún elskaði hana :D Gaman að segja frá því að ég brann svo fokking ógeðslega að það var ekki fyndið! Skal segja ykkur það að þetta er fyrsta skiptið sem ég hef verið brunnin í desember ojáá. Og myndavelin mín dó svo ég á ekki myndir frá jólunum, æjæj. En Bindy tók e-rjar en hún er ekki hér núna svo já ;D

heidi og ég á 'la porchetta'

chrrrrrrrrrrrrrrrrrrrristchurch

labbilabb

anne og ég
A gamlársdag fór ég til Joaquín oooog þangað komu líka Penille, Inko, Fabian, Ilaria, Lukas og svo aðeins seinna Annemette og Jenny. Allavegaaaa, tókum strætó niðrá Cathedral Square þar sem það voru einhverjir leim tónleikar og svoleiðis ... frekar töff samt, var talið niður fyrir áramótin og svo voru allir öskrandi og klappandi og að knúsast og eh haha, frekar fyndið. Hmmmm við bara fórum heim til Joaquín og gistum þar, fórum að sofa eitthvað um 5 leytið ... heyrðu hringdi í mömmu um 00:45 hjá mér þó það væri bara hádegi þar, bara svona til að segja gleðilegt nýtt ár haha!

new years

penille og ég

ég, joaquín, walter og penille

bbq

ég og penille

joaquín og quentin með skúffukökuna mína

fabian, ég, joaquín, quentin, beatriz og pablo

krikket
Allavega, lovjú bæ! Skal vera duglegari að blogga ég lofa ... erfitt að halda svona þegar maður er í sumarfríi en núna er skolinn byrjaður aftur og jahahá! Og hæhó ef ég á að halda þessu afram þá vil ég sko að allir, ALLIR, sem lesi, kommenti okei? takk takk jahá þið skulið sko
7 ástæður fyrir því að skólinn minn er einsog Hogwarts.
Hogwarts; Skólabúningar, skykkjur og skyrtur.
--
Minn; Keppnir til að fá House Points, einsog íþróttakeppni, söng keppni og fleira.
Hogwarts; Quidditch, íþróttakeppni milli húsa, safna stigum og eh.
--
Minn; House cup sem er gefinn til eins house í enda ársins.
Hogwarts; House cup sem er gefinn til eins house í enda ársins.
--
Minn; Það eru 6 houses og öll með asnaleg nöfn.
Hogwarts; 4 houses, Gryffindor, Ravenclaw, Slytherin og Hufflepuff.
--
Minn; Gella sem talar nákvæmlega einsog McGonnagall og er aðstoðarskólastýra.
Hogwarts; McGonnagall...
--
Minn; aðal 'samkomustaðurinn' er kallaður The Hall
Hogwarts; The great hall
--
Minn; er frekar gamall og svona ... blah
Hogwarts; er gamall kastali .. döh
Bara svona til gamans gert, ég elska alveg skólann minn sko ...
Þetta er allt í bili, ég blogga á næsta ári um eitthvað merkilegt! Eða kannski milli jóla og nýárs ... ef ég verð ekki of upptekin á ströndinni! BRING ON THE TAN! Eða sólbruna, hver veit, gat á ósonlaginu ... hef ekki brunnið hingað til og langar ekki að byrja á því.
Mig langar í bæjarins bestu, kókómjólk og bragðaref. Æji screw it ... get beðið í 6 eða 7 mánuði ... ÞVÍ ÉG FÉKK ÍSLENSKT NAMMI UM DAGINN ÚJE.
Btw. Mamma, vissiru að þið skrifuðuð jólakortið til fjölskyldunnar minnar hérna á íslensku .. ? Þau voru frekar puzzled sko og skildu ekki neitt og ég þurfi að þýða.
Anyways, ég nennissikki, comment biatches!
Og já, myndavélin mín er að gefa upp öndina. Held að greyið sé linsubrotin eða eitthvað og hún sér allt í móðu. Við skulum nota endann á þessu bloggi til að minnast hennar og alls þess sem hún hefur gert fyrir okkur síðastliðin 3 ár eða svo. Mér þætti vænt um ef þið gætuð minnst hennar í bænum yðar. Ha, er ég í kaþólskum skóla? Jaaaá hví spyrðu? Nei djok... en samt, myndavél að deyja, sorgarstund.
Queenstown, Auckland og svoleiðis! ;D
En jæja, núna byrjunin i guess. Vaknaði allavega frekar snemma á þriðjudeginum 17. nóvember (daginn eftir afmæli mömmu sko!) og fór og sótti hana Þóru mína á flugöllinn. Ekkert lítið asnalegt að tala íslensku aftur og hún hljómaði frekar bjánalega en vandist fljótt (engar áhyggjur, ég mun alveg ná að muna hvernig þetta er þegar ég kem til baka). Var samt ótrúlega flókið að vera alltaf að skipta á milli íslensku og ensku, og byrjaði nokkrumsinnum að tala íslensku við manneskju sem skildi það bara ekki neitt! Heyrðu, allavega ... back to the blog, tókum strætó niðrí bæ, keyptum endalaust svöl sólgleraugu, fjólublá eru betri en bleik btw, og fengum okkur svo McDonalds, bara svona því að við getum það en ekki þið ... Svo tókum við strætó til Sumner og settumst á ströndina að éta ís ... (AFS = Another Fat Student) og svo bara strætó til baka þar sem við rákumst á eh fólk sem ég þekkti og svo bara strætó heim! Biðum þar í pínu stund bara, svo komu fleiri skiptinemar og fólk úr North Island trip plús Margaret, stelpa úr skólanum, ooooog spa party (heitapottur ... fólk virðist ekki alltaf skilja mig) Pöntuðum pizzu og eh, djöfull geta þessir krakkar étið! Og enduðum svo bara inní litlu ‘stofunni‘ sem ég er með hjá herberginu mínu að spjalla og eh!

jájá þetta getið þið ekki

carina, ole og quentin
Jæææja daginn eftir, semsagt fimmtudaginn 19. nóvember gerðum við nú örugglega eitthvað skemmtilegt en það eina sem ég skrifaði í dagbókina mína var ‘strætó einhvert‘ sem hjálpar nú ekki mikið (stend mig ekki alveg í þessum dagbókarskrifum sko ...) Og já, btw, er að skrifa þetta núna í bókina mína á meðan ég sit í flugvélinni heim og horfi út um gluggann á hversu ótrúlega falleg Suðureyjan er! Get ekki lýst þessu vel með orðum en er ekki með myndavél svo ég skal reyna! Endalaust af fjöllum, engir bæjir, sólskin, lækir og vötn, vá. Haha ég hljóma eins og gamalmenni ... En ætla að halda áfram, hmm, eftir að hafa tekið strætó eitthvert, apparently, fórum við heim og svo bara á ströndina um kvöldið þar sem við vorum með öðrum skiptinemum og eitthvað. Strætó heim og svo pakka fyrir ferðina til Queenstown!
Jæja já, vöknuðum snemma á föstudaginn og lögðum af stað til Queenstown. Tók alveg freeekar langan tíma að keyra, 6 eða 7 tíma? Ég man ekki en það var sko ekki lítið fallegt að horfa ut um gluggan! Stoppuðum hjá Lake Tekapo, æði, ooooog svo hjá stað þar sem fyrsta bungy jump‘ið var.

þóra er alltaf reddí á myndum

bungy
Vöknuðum svo næsta dag og það var smá rigning, röltum okkur bara um og fórum svo í Jet Boating um 12 leytið. Keyrðum fyrst eh með einhverri rútu, niður alveg freeekar bratta brekku og eh. Vorum by far yngstu manneskjurnar þarna .. hey nei, fyrir utan litlu indversku stelpuna sem var sko með mömmu sinni og pabba, afa og ömmu og líklegast langömmu! Jæja, allavega, jet boating var töff, 360° spins og eh ... Og hey, muniði atriðið úr fyrstu Lord of the rings myndinni, þegar álfagellan er með Frodo á hestinum og svörtu gaurarnir eru eh að elt‘ana og hún fer yfir ána og þeir ná henni ekki? Allavega, been there ... 8) og þar sem þið eruð kannski ekki LOTR nördar þá set ég mynd sko ;D Ætlaði að taka mynd þar en þar sem við ákváðum að taka mína myndavél en ekki Þóru og ég er svo ótrulega klár lítil stúlka þá gleymdi eg myndavelabatteriinu minu á golfinu á herberginu minu í chch ... Skal samt stela myndinni sem þóra notaði í sitt blogg til að sýna ykkur ...Jæja allavega ... eftir þetta fórum við eh að skoða í búðir og svona og svo á bát með host-mömmu, bara chill eitthvað.


fórum i svona ;d

queenstown <3

útsýnið úr íbúðinni

myndavél án batterís ...

queenstown

wanaka

komnar frá kayaking

leikvöllur sko, basic

ojaaaá
Á þriðjudag hittum við Anaïs í Riccarton, fórum svo í Northlands og svo niðrí bæ. Heyrðum Jungle Drum spilað í Glassons (búð) og það var alveg freeekar fyndið. Sam sótti okkur og skutlaði okkur heim oooog ég man ekki meira þann dag ...
Miðvikudagurinn fór i það að prenta út myndir fyrir krakkana sem eru að fara, t.d. Hana, hún er farin núna og hún var í ferðalagi og kom heim daginn eftir að ég fór til Auckland og fór frá NZ daginn aður en eg kom til chch, svo ég náði ekki að kveðja hana en skildi í staðinn eftir mynd af okkur saman og bréf til hennar heima hjá henni. Svo kenndum við Sylvain að taka strætó, krakkabjáninn búinn að vera hérna í 5 mánuði og ekki búinn að læra á strætókerfið. Fórum á ströndina bara ooooooog um kvöldið kom Margaret og við fórum í heitapottinn og ég missti símann minn ... en hann er í lagi no worries.
Heyrðu á fimmtudag fórum við með bréfið til Hönu og svo um kvöldið fóru Mel og Patrick með okkur út að borða því þetta var nú siðasti dagurinn hennar þóru í chch. Gerðum bragðaref um kvöldið og hann var sko ekkert líiítið nammigóðuuuuuuur! Flugum svo til Auckland það kvöld og bara jeij (:
Fyrsta daginn minn í auckland fórum við í verslunarmiðstöð sem heitir Sylvia Park og hittum Elju frá Belgíu, vinkonu Þóru, og moritz og eh annan strák frá Þýskalandi og vorum bara eh að chilla þaar. Fórum svo og sáum New Moon og hún var bara góóóð. Tokum lest til baka, sko engar lestir í Christchurch.
A laugardaginn fórum við með host-systur þóru á eh first aid dæmi hjá St. Johns sem var þannig að við feikum fake sár í fésið og áttum að þykjast hafa verið í flugslysi og fólkið átti að hjálpa okkur og það voru dómarar sem voru að dæma þau og eh. Gaman sko, ég fékk að vera á svona börum og eh, haha, frekar spes að þurfa að þykjast vera slasaður.



trúúuðar með blöööðrur
Á þriðjudag fórum við í bió á Queen St og löbbuðum þar um og svoleiðis, freeekar heitt úti minnir mig og líka rakt! Hey já, fengum okkur Wendy‘s, það fæst ekki á ísl, nei.

Fórum rock climbingá miðvikudag og það var ææææði. Alltof langt síðan eg hef klifrað haha. Á fimmtudag fórum við svo i Rainbow‘s end, sem er svona skemmtigarður, og það var alveg frekar töff, fallturn, rússíbani og fleira. Samt óendanlega pirrandi krakkar sem mig langaði að myrða, afsakið mig en þetta var satt.
Á föstudag fórum við í eh mall og svo heim að pakka niður fyrir Midstay camp. Hæ, asnalegt much að það sé strax komið Midstay camp ??? Greeeenjandi rigning allavega svo við fórum í einhverja leiki bara og töluðum og svoleiðis. Spiluðum ömurlegan leik með einni reglu sem maður fær ekki að vita og þarf að giska, ég var ánægð þegar ég komst heim og gat gúgglað hana!

þóra og ééég

eh laukaleikur ... oj

var smá of heitt í solinni sko

allur hópurinn

ströndin

islensku stelpurnar á camp

vatnið sem við syntum í

horfa á stjörnurnar haha

spila mafia

Allavega, þetta voru æææææðislegir 20 dagar og núna sakna ég litlu Floru minnar. Takk fyrir þetta elskan!
Á þriðjudaginn hitti ég Heidi og við fórum niðrí bæ með einhverju folki, svo gisti hún hjá mér og við vorum bara að spjalla og eitthvað og fórum svo að horfa á gömul eurovision video a youtube og eitthvað haha.
Á miðvikudag þreif eg og málaði heitapottinn og um kvöldið var prizegiving í skólanum. Það var boring bara, sagt hver var head girl og svona. Gellan sem kynnti þetta var sko með rödd nkl eins og professor McGonnagall úr Harry Potter og svo var líka gefinn House Cup sem gerir þetta enná meira Harry Potter legra ... frekar spes. Gisti hjá Margaret með henni og Harriet og bara jaaaá.
Um kvöldið var sign out day, frekar boring ,skila bókum og eh. Ég, Margaret, Georjah og Nicole fórum svo í Riccarton mall og vorum bara eh þar, fór svo heim og hitti Sam og Heidi og um kvöldið for ég svo Rock Climbing með Ole.
Í dag var svo síðasti skóladagur og eh, þo ég sé samt eiginlega búin að vera i sumarfrii í mánuð. Hjólaði niðri bæ með Bindy sem tók uþb klst og við fengum okkur hádegismat, kíktum á nágranna okkar, Toni, á spítalann þar sem hun er núna, veit ekki alveg af hverju, og hjóluðum svo til baka. Svo hitti ég Heidi og er svo bara buin að vera að slappa aaaf.
Á morgun fer ég bara til Margaret og eh og um kvöldið er surprise kveðjuparty fyrir Töru því hún er að fara til USA sem skiptinemi, hún er semsagt í skólanum mínum ;D Og á sunnudag er AFS barbecue og svo er ég með goodbye party fyrir nokkra skiptinema í heitapottinum mínum.
Ekkert svo mikið planað í næstu viku nema eg ætla á brimbretti á miðvikudag sem verður tööööff! Og ég er stolt ef einhver er virkilega ennþá að lesa þetta og endilega skiljið eftir comment því annars nenni eg eiginlega ekkert að blogga....
Mun ekkert blogga fyrir jol svo gleðileg jól yndin mín, ekkert jólalegt hér, freeekar fyndið. Heitt og strandarferðir og svoleiðis, en allavega, BÆ :D
hehehe sorry
Hææææææ ég nenni ekki að blogga!
Hér er það sem eg er buin að vera að bralla síðasta mánuðinn:
- Skóli .... bara venjulegt
- Æfa touch rugby (http://en.wikipedia.org/wiki/Touch_rugby)
- Halloween party
- Hayley kom til Chch i heimsokn
- Traffic light party
- Cup day (horse racing, allir dressed up og að hitta folk bara)
- Búið að vera heitt siðustu viku, hlýrabolur og stuttbuxnaveður : D
- Nu bara komið sumarfrí fram í febrúar fyrir utan 3 daga í desember sem ég þarf að fara bara stutt eh i skolan
Ég veit ekki meira að segja sko ... nenniði ekki bara að spurja eh og ég skal svara þvi?
Skal vera duglegri næst ...
Guðmunda, Iceland, Bonnie, Mindy, Mundah, Guddmandah, og eh fleira!
NORTH ISLAND TRIP! Einir bestu dagar lífs míns (:
Ég semsagt flaug til Wellington, höfuðborgar Nýja Sjálands á mánudaginn klukkan 12:30. Lenti þar, hitti folk á flugvellinum og við biðum þar þangað til að fólk frá NZET kom. Keyrðum þá að hostelinu sem við gistum á, ég rétt missti af íslenskum skiptinema sem býr þar, jaaaá, hefði getað hitt íslending í NZ en nei (: En jaaaá, allavega, fór með Heidi á Te Papa sem er eh safn í Wellington og svo röltum við okkur bara uuuum.

Te papa
Fórum svo og fengum kvöldmat og svo var bara spjallað um kvöldið, allir að kynnast og svoleiðis. Það voru semsagt 46 skiptinemar í ferðinni, 18 þeirra frá þýskalandi (jebb, fullt! Haha!) og svo fólk frá spænskumælandi stöðum eins og argentínu, fólk frá brasilíu, finnlandi, danmörku, hollandi, austurríki, ítalíu, chilé, og fullt annað. já og ekki má gleyma belgíu, tvier strákar þaðan oooog liggur við alltaf þegar einhver sagði eitthvað öskruðu þeir BELGIUM, voru meiraðsegja háværari en þjóðverjarnir. og auðvitað ég ein frá íslandi, en ætti nú að vera vön því ... var talað við okkur um kvöldið einsog ég sagði, svo röðuðum við okkur upp í hring og allir áttu að standa hjá einhverjum sem þau þekktu ekki. manneskjan á vinstri hönd okkar var okkar buddy, og við áttum alltaf að finna þá manneskju þegar tour managerinn sagði buddy check, til að hún gæti þá vitað hver væri ekki í rútunni eða svoleiðis. manneskjan á hægri hönd manns var svo sú sem átti að finna mann. síðasta kvöldið áttu svo allir að vera búnir að kaupa $5 buddy gift og gefa sínum buddy. tour managerinn hét Hayley og svo voru tvær aðrar sem aðstoðuðu hana, Lucy og Haru. Þær voru allar vooooða næs (: Hayley hafði keypt lítinn fílsbangsa, sem við skírðum Ellie, og hún var lukkudýrið, eða mascott ferðarinnar. svo var líka rugby bolti og bók sem allir skrifuðu í. Síðasta kvöldið fengu svo einhverjir að eiga þessa hluti. Og jaaá, fíllinn gerði næstum allt, haha, skydiving, paintball, white water rafting, nefndu það! Á endanum fékk hún nickname‘ið Smellie Ellie (eða allavega fannst mér það henta!)


Svo fórum við bara og sóttum sundföt og leiðinni var haldið í hot pools. Ótrúlega dýrt (þó það hafi verið innifalið i verðinu) og bara einsog léleg sundlaug á íslandi. Not impressed sko. Um kvöldið var eh "disco" sem var bara freeeekar spes, haha. Frekar leim eiginlega.

Fimmtudaginn vöknuðum við svo og keyrðum til Taupo. Á leiðinni stoppuðum við svo í einhverjum National Park og svo á einhverri hæð með geðveikt útsýni! Vorum algjörir túristar og tókum myndir, jájá.

já, ég meina, afhverju ekki bara að halda á íslensku stelpunni?
Þegar við komim til Taupo höfðum við smá frítíma og ég, Heidi (finnland), Maurits (belgia), Adrien (belgía), Joaquín (Chile) og Markus (Finland) vorum bara eitthvað að rölta okkur um og svona. Eftir það fengum við að fara i Jet boating því við höfðum misst af því áður og það var geeeeðveikt! Var á stað sem heitir Huka falls. Kallinn sem stjórnaði bátnum hafði samt voðalega gaman af því að skvetta, jájá, gaman að þvííi. Nokkrir enduðu í vatninu á meðan við vorum að bíða eftir hinum hópnum, gátum kennt belgísku strákunum um þaaaað.
Um kvöldið sáum við sjálf um kvöldmat og ég og Heidi elduðum spaghetti sem var bara mjöööög gott. Um kvöldið fórum við svo í aðrar svona hot pools, jafn dýrar en samt miiiiklu flottari. Þá var ég impressed. Það kvöld sátum við svo bara og spjölluðum í eldhúsinu og svoleiðis.

Á föstudaginn fór fólk í skydiving, og þau vöknuðu klukkan 6. Yndislegt að ég vaknaði líka þá og gat ekki sofnað aftur, alveg æði. Svo þegar þau voru búin að því keyrðum við til Rotorua þar sem við fórum á stað sem heitir Haka World og þar lærðum við The Haka og vorum klædd upp í búninga og eitthva. Stelpurnar í pilsi, topp og með hárband og strákarnir í einhverju fáranlegu og svo berir að ofan. Svo voru allir með svona "Maórí Tattoo" í fésinu, stelpurnar á hökunni og strákarnir með meira, haha, þeir tóku það svo ekki af allan daginn, frekar fyndið að sjá fólk glápa á þá.

adrien - með stráka"tattúin"

stelpurnar, haha

finnst ykkur skrýtið að fólk hafi starað á þá ? haha

haha fávitar
Allavega, við lærðum The Haka og svo var það tekið upp og við fáum það sent á dvd einhverntíman. Svo keyrðum við upp að einhverju fjalli, eða hæð, eða veit ekki hvað á að kalla það, og fórum upp í The Gondola. Það var geðveikt flott að sja svona yfir Rotorua, en allavegaaa, svo fengum við 3 ferðir niður í einhverju sem heitir The Luge og var svona einsog litlir bílar, æji kann ekki að útskýra. Frekar kúl samt! Eftir hverja ferð fór maður svo upp í stolalyftu. Fórum svo aftur niður með The Gondola ooooog fengum kvöldmat á staðnum sem við gistum a. Svo var bara movie night og kosý, horfðum á Mr. and Mrs. Smith, haha.

haha litlu "bílarnir" eða whatever


rotorua séð úr the gondola
Laugardagurinn var svo æææææði! Byrjuðum á að fara á stað sem heitir Hells Gate þar sem við löbbuðum bara um og skoðuðum og eitthvað. Það var alveg frekar leiðinlegt, en jájá, enduðum svo á stað þar sem maður gat gert eh carvings og fengum að heyra I‘m yours með Jason Mraz nema bara á Maórí. Freeekar kúl. Svo fórum við í White water rafting!!! Byrjuðum á að fara bara þangað og fá búnað og eitthvað og svo keyrðum við að ánni. Á meðan við keyrðum var eh maður að útskýra hvað við ættum að gera ef við dyttum út í og eh þannig sem var freekar scary. Á meðan voru þau sem fóru ekki i rafting í eh mud pools. En já, komum að ánni, settum bátana út í og lögðum af stað! Í mínum bát voru Julia (USA), Markus (Finnland), Joaquín (Chile) og Maurits (Belgía) og svo eh leiðbeinandi. Held það hafi verið 5 bátar allt í allt.Byrjuðum á að fara niður 1m foss og alltaf þegar við fórum í fossana áttum við að róa þangað til okkur var sagt að hætta, brosa þá í myndavélina og beygja okkur svo niður. Ég er samt alltaf farin niður á myndunum, hah, yndislegt. Svo næst var 2 ½ m fossinn og við lifðum það nú alveg af. Næst kom svo að 7 m fossinum. Ég og Markus ákvaðum að taka gleraugun okkar af og skilja þau eftir í eh boxi í öðrum bát og það var ein besta hugmynd sem ég hef fengið i lífi mínu, Aður en við fórum niður fossinn talaði leiðbeinandinn við okkur um hvað við ættum að gera ef við myndum hvolfa og eitthvað og svo rétti hann Juliu silver fern laufblað, sem er víst iconic fyrir NZ og hún átti að kasta því yfir öxlina á sér. Ef það myndi lenda með grænu hliðina upp myndum við ekki hvolfa, en ef silfurhliðin myndi snua upp, well, you get the drill. Og auðvitað kom silfurhliðin upp! Við allavega lögðum að stað, öll að skíta á okkur, og rerum þar til við vorum komin á brúnina og svo bara niður fossinn. Ánægð að égtok gleraugun af því annars væru þau history! Forum semsagt niður fossinn, undir vatnið og svo aftur upp. Vorum næææææstum því buin að hvolfa, en í staðinn var það bara Julia sem datt útí, haha. Held að bara einn bátur hafi alveg hvolfað. Allavega, mikið grín gert af mér fyrir að hafa slétt á mér hárið um morguninn, hah!

næææstum buin að hvolfa!

haha julia dottin úr
Svo forum við a stað sem hét Agroventures og sumir gerðu eitthvað þar, en ég sat í solinni með heidi og belgísku strakunum og þornaði! Eftir það keyrðum við á stað þar sem var hægt að fara í The Zorb sem er plastgúmmíkúla sem maður fer inní, og svo er sett vatn inní og maður rúllar niður hæð. Geeeðveikt! Enn meira grín gert af mér fyrir að slétta á mér hárið.

heidi og ég fyrir 'the zorb'

ooooog the zorb!

En fórum svo heim, skiptum um föt og svo á stað sem heitir Mitai þar sem við fengum smá svona Maórí kynningu og eh, sáum sýningu hjá þeim og fengum svo ekta hangi, maorí mat em var eldaður í jörðinni, jájá. Fannst það ekkert æði, smakkaðist skringilega, en kúl samt.

hangi

Á sunnudag fórum við frá Rotorua snemma um morguninn og keyrðum til Paihia, Bay of Islands. Freekar langt að keyra en við bara forum í leiki og svoleiðis, og horfðum á Borat, haha. Svo lúllaði ég nú líka barasta þar sem það hafði verið fullt fólk úti a götu að halda mér vakandi nóttina áður, gotta love that. Komum svo til Paihia, elduðum kvöldmat og svo var drag night. Haha það var yyyyyndislegt! Svo fórum við bara í heitapottinn, voða kósý og fínt. Ekki ánægð þar sem ég náði að halda hárinu þurru, ætlaði svo uppúr og Adrien og Maurits ákváðu að henda mér út í köldustu laug í heimi. Yndislegt alveg.

Mánudagurinn átti svo að vera frídagurinn okkar en það höfðu verið mistök í planinu svo við fórum að Cape Reinga, nyrsta hluta Norðureyjunnar. Tok uþb 3-4 tíma að keyra en gjörsmalega worth it, svo ótrúlega flott! Skoðuðum það í smá tíma, keyrðum svo á stað þar sem við fórum á snjóþotu niður stóra sandhæð, haha. Mjög spes en sgjörsamlega þess virði að prófa.

oh þetta var geðveikt kúl, haha

adrien að sýna hæfileika

á leiðinni til cape reinga

heidi og ég á 90 mile beach

hjá vitanum á cape reinga

ég, heidi og vanessa, haha
Keyrðum svo til baka á 90 mile beach (sem er samt bara eh 56 miles, pfft)og komum til baka um 6 leytið. Fórum út að borða, það var bara voða næs. Svo aftur i heitapottinn, haha, tróðum 10 manns, ég, heidi, maurits og adrien frá belgíu, markus frá finnlandi, joaquín frá chilé, aaron og ole og svo 2 aðrir þýskir strákar sem ég man ekki nafnið á, haha, og jaaaá, vorum reyndar rekin uppúr þvi við vissum ekki að það mættu bara vera 4 í einu :‘D Og já, týndi símanum mínum, eða símanum hans sam, um morguninn, haha, 2 símar á 3 vikum, ég held ég sé ekki góð landkynning fyrir ísland.

go belgium!

ég, joaquín og heidi

ég og joaquín (:
Á þriðjudag fengum við svo frídaginn, fór með Maurits, Sylvain (Frakkland), Adrien, Ole, Joaquín og Heidi með einhverri ferju til eyju sem heitir Russel eða eh þannig. Vorum bara eh þar, hittum svo fleiri og fórum þar á ströndina og eh. Þurftum að bíða þar því Adrien var með miðana og hann nennti ekki að fara og lét okkur missa af ferjunni. Svo héldum við að einn leðbeinandinn, Lucy, ætti afmæli, svo við keyptum kort og súkkulaði, og svo löbbuðu ég og Hana frá Tékklandi í supermarket í hálftíma fjarlægð til að kaupa köku, voða næs, ens vo var það bara ekki afmælið hennar! um kvöldið bara barbecue og chill, voða kósý (:

ströndin á russels

costa rica, germany, germany, belgium, germany, iceland, finland, france og belgium að taka myndina

heidi og ég, haha

leiðinni til baka með ferjunni, byrjaði að rigna

með paihia í bakgrunn
Vöknuðum á miðvikudaginn (ÞÓRU AFMÆLI JEIJ) og lögðum af stað til Auckland. Fann símann, eg er frabær!! Keyrðum allavega til Auckland, fengum svo smá frítíma þaaar, fórum svo upp í Skytower og sáum yfir Auckland. Svo keyrðum við á staðinn sem við gistum á og borðuðum pizzuuuuu. Svo var síðasta kvöldið bara! Gáfum buddy gjafirnar okkar og fengum buddy certificate, mitt var ‘For managing to find almost all the stuff you lost‘. Æði : D Og svo, æji, geðveikt krúttó, stelpan sem ég átti að "sjá um" og gefa gjöf (sem ég gerði ..) gaf mér líka gjöf, æji hún er yndi! otrúlega krúttó! :D En já, fólk var með gott hugmyndaflug þarna , lalala. Svo gáfu Hayley og þær út nokkur verðlaun lika, og þar fékk ég bol fyrir að týna flestum hlutum í ferðinni. Sjáiði bara hvað eg er með gott reputation! Allavega, við gáfum Hayley, Lucy og Haru líka gjafir og svoleiðis, jaaaájá. Vöktum svo til 4, sofnaði klukkan 5, jeij.

auckland

skytower

auckland + ronnie að gera sky jump!

auckland baby

max, bílstjórinn, haha

haha ég í auckland ...
Vaknaði a fimmtudag klukkan 7.30, þreytt til dauða, haha. Allavega, morgunmatur og sv otime to say goodbye : ( Allavega, kvöddum suma fyrir utan hótelið, og Heidi var að knúsa Hayley bless, og Hayley byrjaði að gráta, svo Heidi byrjaði að gráta, og þá byrjaði Penille að gráta, svo byrjaði ég að gráta, svo byrjaði Annemette að gráta og bara chain reaction! Kreisí sko. Allavega, kvöddum þá sem urðu eftir, og lögðum svo af stað í rútunni, allir vælandi. Voða voða gaman. ekki alveeeeg! Allavega, sumir strákarnir byrjuðu sko að gráta! Ekki margir reyndar en nokkrir!! Vissi ekki að eg gæti saknað fólks svona mikið sem e´g hef þekkt í svona stuttan tíma ! Og vaaaá hvað mig kvíðir fyrir að heidi fari heim í januar, obbobobb sko! En já, égflaug til chch með Juliu, Ole og Aaron, og svo fékk ég far heim með Aaron því hann býr apparently bara í næstu götu, haha. En já, vorum buin að keyra andskoti langt, sjáðu bara! :

Allavega, svo bara heim til chch, fór í afmæli á föstudaginn og svo gisti ég hjá Margaret úr skólanum á laugardaginn. Nokkrir krakkar úr ferðinni komu i heimsokn þangað, haha, þar sem það eru nokkrir sem búa í chch. Allavega, nú bara skóli í mánuð og svo SUMARFRÍ! (:
Heyrðu já, svo var ég með svona litla bók með mér í ferðinni sem allir skrifuðu í, margir gerðu þetta, og langar bara að sýna ykkur eh sem sumir skrifuðu :D
"Hey Miley Cyrus, it was fun to share this trip with you. (henni fannst ég líta út einsog miley cyrus, haha)" Malena (Argentína)
"It has been great having you on tour with us. Thank you for looking after Heidi! Good thing your head is screwed on - you won't lose it!" Hayley (tour manager)
"I will certainly come to Chch and you have to come to BELGIUM! Don't lose anything more - you're a disaster." Maurits (Belgía)
"I will come to Iceland for sure, maybe go to Hagkaup..." Julia (usa)
"The biggest smiler with the beautiful shoes." Vanessa (þýskaland)
"I have met wonderful people during my NZ exchange and especially during this trip, but people come and go but just a few of you have left footprints to my heart <3" Heidi (finnland)
"Live a humble life, love, peace and never forget your Aaron." Aaron (þýskaland)
"Thank you for everything, friendship and good times. Takk. Love you and bless you (því við vorum að djóka með "bless" á íslensku og nú segjum við alltaf "bless you" í staðinn, haha)" Joaquín (Chilé)
"Hey, it's Belgium. Very pleased to meet you my favourite ice cream (haha :'D) You're welcome in Belgium (best country in the world) where you could drink as much as you want!" Adrien (Belgía)
Þetta er allavega bara brot af því sem sumir skrifuðu, svoooo sætt! <3 Sakna allra krakkanna svo mikiiiið! Og mun væla svo geðveikt þegar Heidi fer : ( Sem er í byrjun Janúar, oh yay, ég verð þunglynd um mitt sumarið. Nei okei ekki alveg en samt! En já, takk fyrir að lesa þetta ef þú gerðir það, og vá, þú hlýtur að hafa mikinn fritima. Nei djoook, en allavega láttu mig endilega vita ef þu ert að lesa með þvi að commenta :D
Takk fyriiiiir
blöögg
Líka búið að vera gaman hjá mér síðustu 2 vikur sko. Fór á ströndina á mánudaginn með Anaïs frá Belgíu og Jessicu og Michal frá Sviss, þó það væri ekki sól var alveg yfir 24°C og ekki slæmt þaaað. Ekki slæmt að vera í fríi á meðan aðrir eru í prófum, oneeei. Á miðvikudag hitti ég svo stelpu úr skolanum, Margaret, og við fórum bara eh að skoða í búðir svona. Svo um kvöldið fór ég í bíó með Mel og Bindy á mynd sem heitir Sunshine Cleaning, frekar speees.
Á fimmtudag var svo ‘Leadership day‘ og það var stórfurðulegur dagur. Allar stelpurnar í mínu ári (Year 12) mættu semsagt inní The Hall (já skólinn minn verður meira Harry Potter-legri með hverjum deginum sem líður) og þar var eh fólk að tala við okkur fyrst og svo byrjuðu herlegheitin. Skal segja ykkur það að hrúga af lollies (hlaup, eða ávaxtakaramellur eða eh þannig) og stelpum skipt upp í hópa og þeim sagt að ná eins mörgum og þær geta og svo má maður ræna fra hinum = ávísun á slagsmál. Ég segi ykkur satt, ég hef ekki oft verið svona hrædd í lífi mínu. Nei ok, smá ýkjur, en þetta var samt ekkert til að gera grín af sko. Svo var bara slatti af svona leikjum og eitthvað, fashion show með þemanu christmas þar sem maður átti að búa til outfit úr pappír og dagblaði. Klæddum Makaelu upp sem jólaskinku, gaman að því, gaman að því. Svo voru djúpar umræður um hvor hefði verið betri leiðtogi, Jesús eða Hitler, gaman að fylgjast með þvíí.
Á föstudag var stal einhver belja símanum minum úr búð og ég get sko sagt ykkur það að ég var ekki ánægð. En ekkert meira að frétta af því, búin að redda nýjum. Anaïs gisti hjá mér og við horfðum á Moulin Rouge og Dirty Dancing. Á laugardag var svo Marae visit með AFS, fengum að sjá svona inní týpískt Maórí eh. Það var, hreint út sagt, boring, og ég þurfti að vera í pilsi = ekki ánægð ég. Svo fór ég með Anaïs, Heidi frá Finnlandi og Sam frá NZ í The Antarctic Centre og það var bara ágææætt, Sam átti frímiða en ég hefði ekki viljað fara ef ég hefði þurft að borga, svo þetta var gooooood. Saum mörgæsir og svona, fór svo inní eitthvað sem heitir „The Storm Room" og það á víst að vera ótrúlega kalt, fólk var gjörsamlega skjálfandi þarna, og jájá, það var kalt, en samt bara ágætlega mikið einsog vetrarmorgun á Íslandi þegar það er frost og mikill vindur!
Abbey hringdi á Sunnudaginn, það var fyndið að tala við hana alla leið frá Texas! A mánudag fór ég heim með Margaret eftir skóla og var boðið í mat þar, bara voða næs. Síðan á þriðjudag hefur svo verið rigning og oj bjakk veður, þrumur og svona, kalt, no me gusta. Nú er samt orðið betra og vona að það haldist þannig! A fimmtudag var ‘Mercy Day‘ í skólanum og þá komu ‘kids with special needs‘ í heimsókn og dagurinn fór bara í það að leika við þau og svona. Það var bara mjög gaman, voða krúttlegt.
Hérna hringir fólk aldrei, allir senda sms! Flestir eru hjá símafyrirtæki þar sem þú borgar $10 (uþb 800-900 kr) og sendir þá 2000 sms. Margir eiga 3 síma til að vera með kort hjá öllum símafyrirtækjum svo það sé ódýrara að senda sms. Eg hef semsagt næstum ekkert talað í símann síðan ég kom hingað en sent billjon sms. Svo er afgreiðslufolkið i búðunum óóóótrúlega svona, fake nice. Spyrja mann alltaf hvernig maður hafi það, hvort maður hafi átt góðan dag, blablabla og svo framvegis. Og ALLIR þakka strætóbílstjóranum fyrir þegar þau fara út. Samt borgar maður nu fyrir þetta, æji, frekar fyndið. Stundum þakkar strætóbilstjórinn manni líka, stundum ekki. Kennararnir eru alltaf kallaðir Mr. eða Mrs. og svo eftirnafnið þeirra, og fólk er alltaf jafn hissa á eftirnafninu mínu, að það þýði Jónsdaughter. Þarf að útskýra það aftur og aftur. Hef aftur verið spurð hvort ég þekki alla á íslandi og get ekki annað en hlegið.
Annars er næstum ¼ af dvölinni minni hérna búinn því ég er buin að vera hér í meira en 2 og hálfan mánuð. Það er ekkert lítið furðulegt finnst mér, tíminn liður endalaust hratt.Á morgun byrjar 'Daylight saving time' og þa breytist tíminn, færist fram um 1 klst held ég.Jaaá ,það verður fyndið : D Svo allavega þa verður ekki sami tímamismunur og það var áður
Allavega, blogga næst eftir North Island trip, svo jaaaá, vona bara að allt sé gott og skal hugsa til ykkar þegar það fer að hitna hérna ;D
Enda þetta með nokkrum myndum:

ég og anaïs í sumner, heitt úti en sjórinn kaldur !

sviss, ísland, belgía (:

heyrðu basic, tré í christchurch

ég elska þessi tré. "weeping willow" eða eh

marae dæmið

storm room í the antarctic centre, ég og anaïs

hmm, kiwi bird, penille frá danmörku, ég, og páfagaukur.
Þetta er fyrirsögn.
Ekkert mikið búið að vera að gerast hjá mééér, er núna farin að klæðast sumarbúningnum sem er ljósblár kjóll. Skal sýna ykkur mynd .... svo þið verðið að elska mig.

Á mánudaginn fór ég í skólann baraaaaa, svo fór ég í mat til AFS konu um kvöldið. Sonur hennar er nýkominn frá Íslandi þar sem hann var í svona 1 og hálft ár. Þau áttu kokteilsósu, haha, og íslenskan lakkrís, það var æði! Talaði aðeins við hann um Ísland og svona, jaaaaa. Fór svo með AFS konunni á annan fund um kvöldið, því þau vantaði bara einhvern aukalega því það voru svo fáir á fundinum. Það var ekkert spes, var bara ótrúlega þreytt, haha. Á þriðjudaginn fór ég í skólann, labbaði svo heim í góða veðrinu. Svo kom Heidi frá Finnlandi til mííín og við hituðum pizzu og átum búðing og horfðum á mynd. Svo bauð Mel Heidi að gista oooog hún gerði það, það var gamaaaan (: Vaknaði svo "hress" á miðvikudagsmorgun oooooooog já. Skráði mig í ‘touch rugby‘, gerið grín af mér eins og þið getið, mér er skítsama. Ég kann ekki reglurnar og veit ekkert um þessa íþrótt en þetta byrjar samt ekki fyrr en á næsta ‘term‘ og jaaaá, þetta verður kúl. Googlið þetta bara ef ykkur langar að vita eh um þetta (:
Sá franska bíómynd á fimmtudaginn með Mel og Bindy, hún var bara mjöööög góð! Á föstudag var enginn skóli, ég var ekkert fúl sko! Ákvað að fara í hjólatúr, en villtist og sneri við. Fór í staðinn í 5 km göngu, það var ekkert slæææmt! Svo fórum ég á eh quiz hjá hinum chapterinum með Sylvain frá Frakklandi og host-mömmu hans og Anais og Anne, konu frá AFS og syni hennar. Það var bara mjöööög gaman.
Svo vaknaði ég kl 6 á laugardaginn og fór að Mount Hutt með Sylvain, Joaquín frá Chilé, Penille frá Danmörku, Chika frá Japan og svo voru líka Sarah og Tim, host-systir og host-pabbi Penille og Rob og Cameron, host-pabbi og host-bróðir Sylvain. Allavega, ákvað að það gæti verið kúl að prufa snjóbretti og það var ÆÐI! mér fannst það ekkert líííítið gaman : D En já, var samt alveg freeeekar þreytt, haha kom heim um5-leytið og svo bara í bað og eh kósý. Og í dag, sunnudag, var ég með svo miklar harðsperrur að ég gat varla hreyft mig! Ekkert fyyyyyyyndið sko! En já, fór með Heidi, Juliu frá USA, Penille og José frá Argentínu þar sem við gerðum eh Community Service og það var bara að hjálpa gömlu fólki og svona, voða næs. Vorum búin kl. 2 og ég, Heidi og Julia ákváðum að taka strætó niðrá strönd (Sumner) og það var bara vooooða næs. Ætluðum svo heim, fórum í strætóinn en hann bilaði, jeij ... þurftum að bíða og komst svo loksins heim um 7-leytið. Og núna bara chill eitthvað 8) Erfitt að gera allt, er að deyja úr harðsperrum, haha. Vil samt pottó prófa aftur snjóbretti, það var æði!
Um daginn var ég að lesa blöðin (okei ég skoðaði forsíðuna, anywho) oooog sá frétt sem hræddi mig, haha. Það höfðu allavega fundist tvö lík í eh húsi og eitt af þeim er stelpa sem hvarf fyrir ári, hitt er kona mannsins sem bjó í húsinu. Þetta hús er í like, hálftíma fjarlægð frá húsinu mínu og sonur AFS konunnar sem ég borðaði hjá setti actually upp þjófavarnarkerfið í þessu húsi, haha. En auðvitað er Christchurch 380þús manna borg svo auðvitað heyrir maður meira um svona heldur en á Íslandi. Ooooog ég passa mig alltaf, lofa, haha : D Líka það sem er svoldið skrýtið að búa í svona stórri borg (eða... stórri miðað við Ísland) er að það er sér útvarpsstöð hérna, sér dagblöð og ég held meiraðsegja einhverjar sér sjónvarpsstöðvar (eða þá sem gildir yfir bara suðureyjuna, eða ég er ekki viss, haha).
Er farin að venjast hreimnum hérna, svolítið fyndið hvernig fólkið talar reyndar. Þau segja ótrúlega oft ‘eh‘ á eftir einhverju sem þau segja, eins og: "That‘s pretty hard, eh?" Svo var eitt sem mér fannst voða skrýtið í byrjun, og það er þegar þau segja: "That‘s cool as!!" Beið alltaf eftir því að þau myndu segja hvað þetta væri ‘cool as ...‘ en það kom aldrei ,haha, og þetta er bara eh sem þau segja greinilega. En jaaaá, orðin frekar vön þessu og actually farin að segja ‘siven‘ en ekki ‘seven‘. Og einsog þið sjáið líklegast er bloggið mitt fullt af enskuslettum, haha. Gaman að þessuuuuu. Er búin að vera hérna í 2 mánuði núna, tíminn líður endalaust hratt!
Kókið hérna er fyndið, maður getur fengið kók í 400 ml flöskum og 600 ml flöskum en ekki hálfs líters. Svo er hægt að fá 1,5 l flöskur og 2,50 eða 3l flöskur. Semsagt ekki hálfs líters, eins líters og 2 l flöskur einsog heima! Svo eru pizzurnar yfirleitt ekkert svakalega góðar því þær eru oftast með einhvernvegin skrýtinni sósu, en held Dominos pizzur séu einsog heima. Tómatsósan er heldur ekki góð, ullabjakk. Oooog já, mig langar endalaust mikið í mömmulasanja, engjaþykkni, kókómjólk og grillaðar pylsur með steiktum lauk og remúlaði. Líka kristal plús og bragðaref!! en jaaaá .... veit ei meira til að segja svo bara bæ : D
